Candy
Verð að deila þessari nammiuppskrift. Þetta mun slá í gegn - ég lofa. Sá hana á Gulur, rauður, grænn og salt og þvílik himnasæla.
Verði ykkur að góðu.
Sykurlaus karmella með möndlum og dökku súkkulaði
250 g smjör
200 g möndlur
220 g Erytríól sæta með stevíu, frá Via Health
1 tsk vanilludropar
¼ tsk salt
200 g dökkt súkkulaði, gróflega saxað
50 g pecanhnetur, saxaðar
- Setjið möndlurnar á bökunarplötu með smjörpappír og hitið í 175°c heitum ofni í 10 – 15 mínútur eða þar til möndlurnar eru orðnar gylltar. Takið úr ofninum, dreifið þeim nokkuð jafnt yfir smjörpappírinn og geymið.
- Gerið karmelluna með því að bræða smjör í potti og bæta síðan sætunni, vanilludropum og salti saman við. Hitið við meðalhita og hrærið reglulega í blöndunni í um 15 mínútur eða þar til blandan er orðin ljósbrún á lit. Hellið þá karmellunni yfir möndlurnar og stráið súkkulaðinu yfir. Bíðið þar til súkkulaðið hefur bráðnað og sléttið þá úr því og stráið síðan smátt söxuðum pekanhnetum yfir allt.
- Látið karmelluna harðna í að minnsta kosti 2 klst og brjótið síðan niður í hæfilega bita…og njótið.
http://gulurraudurgraennogsalt.com/